Árnastofnun leitar að hugmyndaríkum og skapandi einstaklingi í starf vefstjóra með reynslu af markaðsmálum.
Áhersla er lögð á vefmál og miðlun stafrænna gagna stofnunarinnar. Eins er lögð áhersla á markaðssetningu m.a. með kynningu á sýningunni Heimur í orðum ásamt íslenskri tungu og menningu.
Árnastofnun stendur á spennandi tímamótum og hefur flutt í Eddu sem er nýr og glæsilegur vettvangur íslenskrar tungu, bókmennta, handrita og menningar. Vinnustaðurinn okkar er fjölbreyttur og lifandi og mun vefstjóri taka þátt í teymisvinnu þvert á svið stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
* Tekur þátt í stefnumótun og þróunarstarfi á miðlunarsviði Árnastofnunar.
* Sér um íslenskar og enskar vefsíður stofnunarinnar og markaðskynningu þeirra.
* Tekur þátt í að hanna markaðsefni og markaðssetja sýninguna Heimur í orðum í Eddu.
* Sér um að miðla upplýsingum um starfsemi stofnunarinnar, sýningu og viðburði.
* Vinnur að því í samstarfi við starfsfólk stofnunarinnar að miðla rannsóknum fræðasviða hennar, íslenskusviðs og menningarsviðs.
Menntunar- og hæfniskröfur
* Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði markaðsmála, vefstjórnar eða stafrænnar miðlunar.
* Góð tölvuþekking og reynsla af vinnu við vefsíðugerð er nauðsynleg.
* Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg.
* Frjó og skapandi hugsun.
* Gott vald á íslensku og ensku er nauðsynlegt og æskilegt að viðkomandi hafi gott vald á einu Norðurlandamáli.
* Þekking á Drupal-vefumsjónarkerfinu og fréttabréfakerfinu Mailchimp er æskileg ásamt kunnáttu á Adobe InDesign, Photoshop og Illustrator.
* Grunnþekking á HTML, CSS og Javascript er kostur.
#J-18808-Ljbffr